loading

Vörunúmer: 47-0553

Púsl, Sleðaferð Jólasveinana 500

500 bita útgáfa af fallegu og hátíðlegu púsli með mynd af íslensku jólasveinunum og fylgdarliði að renna sér á hraðferð niður fjallshlíð. Hvort sem þeir bræður eru á leiðinni til byggða stuttu fyrir jól eða einfaldlega að skemmta sér og stytta sér stundir meðan beðið er eftir næstu jólahátíð er óljóst…en eitt er víst; það er aldrei lognmolla hjá þessari litríku fjölskyldu. Púsl sem öll fjölskyldan getur sannarlega haft gaman af yfir jólahátíðina.

Myndin er teiknuð af listamanninum Brian Pilkington sem er þjóðkunnur fyrir teikningar sínar og snjallar bókaskreytingar. Bækur hans um íslenska þjóðtrú og tröll hafa vakið verðskuldaða athygli og mótað sýn þjóðarinnar á hérlendum kynjaverum.

Verð: 2.690 kr.

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager
Product info

Aldur: 10+
Fjöldi Púslbita: 500
Myndefni púsls: Jólasveinar
Vörunúmer: 47-0553
Stærð: 48,5 x 34,5 sm
Þyngd: 455 gr
Stærð pakkningar: 22,5 x 31,5 x 4,8 sm
Framleiðandi Púsls: Nordic Games
Listamaður púsls: Brian Pilkington