Kaupfélag Borgfirðinga - Egilsholti 1, 310 Borgarnes - Sími 430 5500
Notkun innanhúss:
Breiðið yfir fiskabúr og stöðvið dælu þar til 1 klst.er liðin frá úðun og búið er að lofta rækilega út. Fuglar í búrum eru fjarlægðir áður en úðun fer fram. Lokið dyrum og gluggum og úðið upp á við og í hring í herberginu í u.þ.b. 10 sek. Verið í hæfilegri fjarlægð frá veggjum og húsgögnum. Úðinn úr úðabrúsanum dreifist jafnt um herbergið af sjálfsdáðum og drepur næm meindýr innan 1/2 klst., einnig á plöntum.
Úðið beint á plöntur sem eru illa farnar af völdum meindýra. Verið þá í a.m.k. 60 cm fjarlægð frá plöntunum. Skríðandi meindýrum, s.s. klaufhölum, skilfurskottum, maurum, kakkalökkum o.fl. er best að eyða mð því að úða beint á fylgsni þeirra.
Notkun utanhúss:
Virkt gegn ýmsum meindýrum sem sjúga og naga jurtir, s.s. blaðlúsum, spunamaurum, lirfum o.þ.hl.
Úðið í kyrru veðri, veifið brúsa með mjúkri sveiflu í u.þ.b. 60 cm fjarlægð frá plöntunum en þær þurfa ekki að verða rennvotar. Ef nauðsyn krefur er neðra borð blaða einnig úðað. Úðið ætíð undir kvöld og aldrei í sólksini.