Mar Wear ófóðraðu nítríl vettlingarnir eru búnir til úr frostþolnu nítrílgúmmíi sem frýs ekki fyrr en við 30 stiga frost svo hanskarnir haldast liprir og þægilegir þótt unnið sé í miklum kulda. Auk þess gefur efnið gott grip og veitir viðnám við efnum á borð við olíu.